Þrír ættliðir stóðu vaktina í Tvistinum
Á myndinni eru þrír ættliðir á sömu vaktinni í Tvistinum: Karen Ösp Birgisdóttir, Embla Mekkín Jónsdóttir og Birgir Sveinsson.

TM-mót stúlkna og Orkumót drengja eru ávallt stórar helgar í Vestmannaeyjum. Þá streyma hingað keppendur, þjálfarar, fararstjórar og aðstandendur víðs vegar að og líf fjör færist í bæinn.

Mikið annríki fylgir því fyrir veitingastaði og verslanir. Einn þeirra staða sem finnur vel fyrir auknum umsvifum er Tvisturinn, þar sem Birgir Sveinsson ræður ríkjum.

„Allt gekk frábærlega þessa daga á TM-mótinu þrátt fyrir mikla umferð. Við erum með einstaklega gott starfsfólk og það skipti sköpum. Veðrið lék líka við okkur og allir voru kátir og glaðir, hvort sem það voru keppendur, þjálfarar, fararstjórar, foreldrar eða aðrir gestir,“ segir Birgir.

Til að manna vaktirnar fékk hann aðstoð úr nánustu fjölskyldu. „Karen Ösp dóttir mín og afastelpan Embla Mekkín voru kallinum til aðstoðar. Það var sérstaklega gaman að sjá þrjá ættliði vinna saman á sömu vaktinni,“ segir hann.

Næst á dagskrá er Orkumótið í næstu viku. „Það leggst mjög vel í okkur og það er bara tilhlökkun að taka á móti öllum þeim gestum sem þá koma. Svo tekur Þjóðhátíðin við í byrjun ágúst. Hún er alltaf skemmtileg en krefjandi á sama tíma þegar samræma þarf vinnu og skemmtun. Þetta hefst allt saman og verður bara gaman,“ sagði Birgir að lokum.

 

Nýjustu fréttir

Sunnudagsmorgunn með alþjóðlegum blæ
Um 8000 farþegar með tíu skemmtiferðaskipum
Tvö skemmtiferðaskip í blíðunni í Vestmannaeyjum
Fyrstu spár lofa góðu fyrir Þjóðhátíð
Skiptu 3.000 tonnum af makríl fyrir 1.400 tonn af þorski
Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax
Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.