Tekjur Vestmannaeyjabæjar langt yfir áætlun
Yfir eyjar, HBH 26
Vestmannaeyjabær. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja í síðustu viku var lagt fram fjögurra mánaða rekstraryfirlit fyrir árið 2026.

Fram kemur í fundargerð að heildartekjur samstæðu A og B hluta Vestmannaeyjabæjar hafi verið 8,8% hærri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir á fyrstu fjórum mánuðum ársins. Á sama tíma var heildarrekstrarkostnaður 1,4% hærri en áætlað hafði verið.

Samkvæmt yfirlitinu er rekstrarafkoma samstæðunnar því betri en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Þá var einnig lagt fram rekstraryfirlit fyrir A-hluta sveitarfélagsins, eða sveitarsjóð. Þar voru heildartekjur fyrstu fjóra mánuði ársins 9,7% hærri en áætlun gerði ráð fyrir en rekstrarkostnaður aðeins 0,3% yfir áætlun.

Afkoma A-hlutans er samkvæmt því mun betri en gert hafði verið ráð fyrir í upphafi árs, segir jafnframt í fundargerðinni.

Nýjustu fréttir

Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eldur í Maggý VE 108 – Slökkvistarf gekk greiðlega
Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Sóley og Örlygur Helgi eru klúbbmeistarar GV 2026
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.