Bói Pálma, Halldór Sveins og Jói Myndó í Einarsstofu - breyttur tími
Jói Myndó

Það er öflug þrenning sem mætir með myndir sínar í Einarsstofu kl. 17.00 á föstudaginn. Þeir eru Halldór Sveinsson, lögregluvarðstjóri, Jói Myndó og Sigmar Pálmason betur þekktur sem Bói Pálma.

Sýningin er hluti af Safnahelgi og sýningarröðinni, Vestmannaeyjar í gegnum ljósopið mitt og er sú níunda í röðinni.  Halldór hefur í mörg ár tekið myndir af því sem fyrir augu hans ber og ætlar hann að gefa okkur tækifæri á að kíkja aðeins í safnið.

Bói tók ómetanlegar myndir í Heimaeyjargosinu 1973 og má þakka Jóa Listó að þær enduðu ekki í glatkistunni. Jói Myndó, er unglingurinn í hópnum og hefur á ótrúlega skömmum tíma náð að sanna sig sem athyglisverður ljósmyndari.

Fólk er beðið um að athuga breyttan tíma vegna Safnahelgar og verður sýningin klukkan 17.00 á föstudaginn en ekki á laugardag. Sýningin stendur yfir í um einn og hálfan tíma.

Nýjustu fréttir

Halldór Jón aftur í ÍBV
Fluttu hús í heilu lagi
Sjáv­ar­af­urð­ir: Ágæt­is aukn­ing í fe­brú­ar
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn
Þarftu að fara á fund?
Hljómey – Klara Einars mætir
Gildin sem móta okkur
Til Sjálfstæðismanna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.