Boltinn er hjá Sjómannafélaginu
Fundað var í kjaradeilu undirmanna á Herjólfi hjá Ríkissáttasemjara í gær en Sjómannafélag Íslands fer með samningsumboð fyrir undirmenn Herjólfs á meðan Samtök atvinnulífsins semja fyrir hönd Eimskip. Haft er eftir Jónasi Garðssyni á mbl.is að á fundinum hafi verið �??rúllað yfir stöðuna�?? án þess að neitt nýtt kæmi fram.
�?lafur William Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips segir hins vegar að SA hafi lagt fram formlegt tilboð sem Jónas hafi umsvifalaust hafnað en hann situr einn við samningaborðið fyrir hönd áhafnarinnar og hefur Eimskip m.a. bent á að æskilegt væri að einn af undirmönnunum myndi sitja fundina.
�??Við höfum ítrekað kallað eftir því að fulltrúar áhafnar séu við borðið, þannig að þeir fái upplýsingar um tilboðin strax á sama tíma og hann. �?eir hafa ekki orðið við því, en við teljum að það myndi auðvelda allar samningaviðræður,�?? segir �?lafur í samtali við mbl.is.
�?ar segir jafnframt að tilboðið sem Eimskip hafi lagt fram hafi m.a. snúið að dagvinnu undirmanna, sem yrði stytt frá því að vera milli 8 til 17 í 8 til 16. �?á hafi verið komið til móts við kröfur um álagsprósentu að sögn �?lafs.
�??Menn verða að koma til samningaborðsins með samningsvilja. Við vinnum að því hörðum höndum að leggja fram tilboð. Nú lítum við svo á að boltinn sé hjá Sjómannafélaginu að koma með gagntilboð,�?? sagði �?lafur.

Nýjustu fréttir

Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.