Bótakrafan hljóðar upp á 1,9 milljarða
DSC_5464
Huginn VE kemur að bryggju umrætt kvöld í nóvember 2023. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Í dag var þingfest í Héraðsdómi Suðurlands stefna Vestmannaeyjabæjar á hendur Vinnslustöðinni hf. og Hugin ehf., auk VÍS sem er tryggingafélag fyrrgreindra félaga, til greiðslu fullra bóta fyrir það tjón sem skip þessara félaga, Huginn VE-55, olli á vatnsleiðslu í eigu bæjarins 17. nóvember 2023.

Í tilkynningu sem birt er á vef Vestmannaeyjabæjar segir að bótakrafan hljóði upp á tæplega 1,9 milljarða króna og segir enn fremur að hún sé ítarlega rökstudd í stefnunni. Stefnan byggir m.a. á því að það teljist fullsannað að tjóninu hafi verið valdið af stórfelldu gáleysi og að á því beri ofangreind félög fulla ábyrgð gagnvart íbúum Vestmannaeyja.

Í sameiginleg bókun bæjarstjórnar Vestmannaeyja um þetta í efni í fyrrasumar sagði:

„Bæjarstjórn styður niðurstöðu bæjarráðs að höfða dómsmál til að heimta fullar bætur fyrir það tjón sem útgerð Vinnslustöðvarinnar olli á vatnslögninni milli lands og Eyja. Fyrir liggur að tjónið nemur a.m.k. 1.500 milljónum króna en útgerðin og tryggingafélag hennar freista þess nú að takmarka bæturnar við um 360 milljónir króna, skv. heimildarákvæði í siglingalögum.

Þrátt fyrir umrætt heimildarákvæði er ekkert sem bannar Vinnslustöðinni að bæta að fullu það tjón sem fyrirtækið hefur valdið bæjarbúum. Það væri viðskiptaleg ákvörðun sem félaginu er fyllilega heimilt að taka. Tjónið er gríðarlegt og nemur a.m.k. 300 þúsund krónum á hvern bæjarbúa. Það er siðferðislega óásættanlegt að þessu tjóni verði eingöngu velt yfir á íbúa í Vestmannaeyjum með hækkun skatta og gjalda á meðan tjónvaldurinn sjálfur, Vinnslustöðin, sé eini málsaðilinn sem komi skaðlaus frá því tjóni sem hún olli.

Vinnslustöðin hefur hafnað óskum Vestmannaeyjabæjar um viðræður vegna málsins og því er óumflýjanlegt að gæta hagsmuna bæjarbúa fyrir dómstólum.’’

Nýjustu fréttir

Mikill áhugi á Eyjagöngum
Saltfisksala hjá meistaraflokkum ÍBV
ÍBV með mikilvægan sigur á ÍR
Kveikjum neistann: Jákvæðar vísbendingar
Hvattning til Eyjamanna
Heilsuefling starfsfólks fær aukið vægi
Handhafar Fréttapýramída 1992-95
ÍBV sækir ÍR heim
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.