Í dag eru tímamót í flugsögu Vestmannaeyja. Í fyrsta lagi er í kvöld síðasta áætlunarflug Flugfélags Íslands milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja, í bili í það minnsta. En það sem verra er, Bragi Ingiberg Ólafsson hættir um leið störfum en Bragi hefur verið lengur en elstu menn muna upp á flugstöð. Fjölmenn kveðjuathöfn var haldin í flugstöðinni í Eyjum þar sem margir af fyrrverandi starfsmönnum Braga voru viðstaddir auk fjölmargra gesta.