Breki VE farinn til veiða sunnan Eyja

„Við tókum tvö karfahöl í gærkvöld og í nótt. Þar með erum við komnir með skipið til veiða. Fyrstu sólarhringarnir fara annars að miklu leyti í að stilla af spil og vinnslukerfi, eins og við var búist,“ sagði Magnús Ríkarðsson, skipstjóri á Breka VE, í morgun.

Áhöfnin á nýja VSV-togaranum er sem sagt komin á miðin til veiða. Sú stund var giska langþráð!

Breka var siglt úr höfn á þriðjudaginn. Um borð voru rafvirki og einnig tæknimaður frá framleiðanda togspila skipsins til að taka þátt í að stilla búnaðinn og sjá til þess að vinnslukerfið gengi eins og til er stofnað.

Aðkomumönnunum var skilað í land í morgun og um borð kom Sverrir Haraldsson, sviðsstjóri bolfiskvinnslu VSV, áður en lagt var úr höfn nýjan leik. Hann ætlar að taka þátt í fyrsta alvöruveiðitúrnum sem ekki er vitað hve langur verður:

„Menn eru fyrst og fremst ánægðir með að vera komnir í gang. Gera má ráð fyrir að tæki og tól verði áfram stillt og prófuð í dag en með því var reiknað. Þetta lítur allt ágætlega út.“

Nýjustu fréttir

Ófært til lands – uppfært
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu
Ferðaþjónustan er öflug atvinnugrein sem þarf tryggar samgöngur
Gul viðvörun á Suðurlandi: Búist við þrumuveðri
Evrópudagur talþjálfunar er í dag
Forsala á Þjóðhátíð 2026 hafin
Hitastig sjávar að vetri aldrei verið hærra
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.