Það verður mikið um dýrðir og háa tóna föstudagskvöldið 4. júní en þá ætla allir helstu rokk- og eðalsöngvarar landsins að koma saman í Höllinni Vestmannaeyjum og fara í gegnum alla „hittarana“ frá sjöunda, áttunda og níunda áratugnum. Sjaldan eða aldrei hafa jafn margar stjörnur komið saman í Höllinni á einu sviði og má búast við stórkostlegri dagskrá. Á efnisskránni eru m.a. Deep Purple, Journey, Led Zeppelin, Eagles, Whitesnake, ásamt öllum hinum risunum. Búast má við gæsahúð og blóðnösum fyrir lengra komna.