Eins og fram hefur komið hér á vefnum var á dögunum ákveðið að setja parkett í gamla íþróttasal Íþróttamiðstöðvarinnar. Hafist var handa eftir hádegi í dag við að rífa dúkinn og undirlagið af svo framkvæmdir geti hafist en áætlað er að byrja á því að leggja nýja parketið eftir Þjóðhátíð. Það tók vaska sveit iðnaðarmanna byggingafyrirtækisins Steina og Olla ekki langan tíma að rífa gólfefnið af.