Ágætu Sunnlendingar. Eftir að hafa legið undir feldi í langan tíma hef ég komist að þeirri niðurstöðu að ég gæti gert gagn á Alþingi og þess vegna býð ég mig fram í 1. – 4. sæti á framboðslista Samfylkingar hér í Suðurkjördæmi. Ég er kommakrakki úr Hveragerði, félagshyggja og jöfnuður eru mér í blóð borin og ég reyni alltaf að breyta af heiðarleika og sanngirni. Betur get ég ekki lýst mér, þannig finnst mér ég vera.