Staðfesta gjaldskrá með einstaklega takmörkuðum gögnum
Húshitun í Vestmannaeyjum sker sig frá öllum öðrum sveitarfélögum með hækkandi verðum 2021 til 2023.

Eyjafréttir hafa fengið afhent skjal frá umhverfis- orku- og loftlagsráðuneytinu. Skjalið var lagt fram af HS Veitum til rökstuðnings fyrirtækisins á hækkunum á gjald skrá félagsins í Vestmannaeyjum.

Áður hafði ráðuneytið synjað Eyjafréttum um afhendingu skjalsins en úrskurðarnefnd um upplýsingamál var sammála Eyjafréttum um mikilvægi þess að íbúar hafi tök á að afla sér gagna til greiningar á gjaldskrá félagsins.

Rétt er að minna á það að HS Veitur hafa einkarétt á dreifingu á heitu og köldu vatni ásamt dreifingu á rafmagni í Vestmannaeyjum, eða eins og segir m.a. í niðurstöðu úrskurðarnefndar: „Í þessu samhengi skiptir máli að umbeðnar upplýsingar, sem eru rúmlega eins og hálfs árs gamlar, varða hitaveitustarfsemi HS Veitna hf. í Vestmannaeyjum en félaginu hefur verið veitt einkaleyfi á þeirri starfsemi eftir ákvæðum orkulaga.”

Kemur illa út fyrir ráðuneyti og Orkustofnun

Ekki verður annað séð en að ekkert eitt yfirvald fylgist með gjaldskrá veitufyrirtækjanna í landinu. Sjá nánar í fréttaskýringu Tryggva Más í Eyjafréttum í dag sem sýnir ótrúlega framkomu HS Veitna gagnvart Eyjamönnum.

Áskrifendur Eyjafrétta geta nálgast vefútgáfuna hér til hægri á síðunni. Viljir þú gerast áskrifandi smellir þú hér.

Nýjustu fréttir

Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.