Hertz bílaleiga er nú með bílaleigu á Bakkaflugvelli. Sigfús Sigfússon, einn eigenda Hertz, hefur áður þjónustað Eyjamenn, hann var um tíma markaðsstjóri Íslandsflugs og var með ALP bílaleigu sem var m.a. með bíla á Bakkaflugvelli. „Ég kynntist mörgum góðum Eyjamönnum þegar ég var markaðsstjóri hjá Íslandsflugi á árunum 1990 til 2000,“ sagði Sigfús.