Desember er erfiður fyrir alltof marga
12. desember, 2020
Séra Viðar Stefánsson

Styrktarsjóður Landakirkju úthlutar fyrir hver jól til þeirra sem á því þurfa að halda. Séra Viðar Stefánsson sóknarprestur segir það ekki komið á hreint hversu margir það verða núna í ár sem fá úthlutað úr sjóðnum. „Þeim fækkar alla vegna ekki. Síðustu mánuðir hafa verið strembnir í þessum efnum og við höfum séð aukna þörf sérstaklega núna á haustmánuðum. Það er ljóst að desember, þrátt fyrir mikil ljós, gleði, fögnuð og hátíð, verður erfiður fyrir alltof marga. Í fyrra voru þetta hátt í 40 úthlutanir og nokkurt hlutfall þeirra var til barnafjölskyldna. Sem betur fer er þessi aðstoð til staðar því hún kemur sannarlega í góðar þarfir og skiptir miklu máli fyrir mjög marga. Hins vegar væri vissulega óskandi að það væri ekki þörf.“

Spyrja ekki um trúarafstöðu
Viðar segir jólin og aðventuna vera annasaman tíma í þessum efnum en úthlutað er úr sjóðnum allt árið um kring, bæði til einstaklinga og barnafjölskyldna. „Einnig höfum við veitt úr sjóðnum til að greiða fyrir ýmislegt sem er nauðsynlegt fyrir viðkomandi, eins og lyfjakaup o.fl.. Úthlutun úr sjóðnum fer alltaf í gegnum presta Landakirkju sem spyrja aldrei um trúarafstöðu eða trúfélagsaðild. Við komum til móts við þörfina en ekki trúfélag viðkomandi.“ Viðar segir upphæðirnar sem úthlutað er misháar. „Þetta er þó slík upphæð að það munar heilmiklu fyrir viðkomandi. Við njótum líka aðstoðar Hjálparstarfs kirkjunnar sem við úthlutum einnig með okkar úthlutun allt árið um kring en þó sérstaklega fyrir jól. Vissulega fer þó hlutfallslega meira til barnafjölskyldna heldur en einstaklinga.“

Íslendingar í miklum meirihluta
Viðar segir þá sem leita til sjóðsins vera á öllum aldri, jafnt einstæðinga sem og fjölskyldur með börn og fólk bæði af erlendum uppruna og Íslendinga. „Íslendingar eru í miklum meirihluta enda eru þeir e.t.v. meira meðvitaðir um tilvist styrksins. Hins vegar höfum við farið í smá samstarf við Klaudiu fjölmenningarfulltrúa núna í ár en hún hefur bent skjólstæðingum sínum á úthlutunina. Við eigum því eftir að sjá hvort það skili sér í auknum fjölda umsókna því þar er þörfin ekki síðri.“

Einn er einum of mikið
Er fátækt útbreiddari í Vestmannaeyjum en fólk heldur? „Í hugum þeirra sem glíma ekki við fátækt er fátækt mun algengari en þeir halda. Svo er alveg eins með þetta og margt annað sem betur má fara að einn er hreinlega einum of mikið. Fátækt er margþættur vandi og ljóst er að hún gengur oft í erfðir og einstaklingar þurfa oft að lyfta grettistaki til að komast úr viðjum fátæktar. Fátækt er einnig oft kerfislægur vandi þar sem einstaklingar lenda á milli í blessuðu kerfinu. Það er erfitt að uppfylla ýmsar kröfur þegar innistæðan er lítil sem engin. Hvort fátækt er algengari eða verri hér í Vestmannaeyjum er erfitt að svara en einn er að sjálfsögðu einum of mikið.“

Tár falla við úthlutun
Sjóðurinn er fjármagnaður af einstaklingum og fyrirtækjum hér í Eyjum. „Sumir gefa reglulega og aðrir ekki. Burtséð frá því er það fyrir tilstuðlan slíkrar gjafmildi sem við getum úthlutað úr sjóðnum. Hægt er að leita til okkar prestanna til að styrkja sjóðinn en einnig er hægt að styrkja hann með millifærslu:
Bnr. 0185-15-551107
Kt. 280374-4829
Við þökkum kærlega fyrir öll framlög sem lögð eru í sjóðinn. Margt smátt gerir eitt stórt og enn meira til þeirra sem þurfa. Hjá sumum falla tár við úthlutun, sérstaklega fyrir jól. Það er ágætt dæmi um það hversu miklu máli þessi sjóður og úthlutun skiptir. Sérstaklega á aðventu og jólum.

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst