Hún Landeyjahöfn var mikil samgöngubót, þegar hún var tekin í notkun í júli árið 2010 og er það enn, – þegar hún virkar. En nú er ég farinn að efast um að það sé réttlætanlegt að halda áfram á sömu braut, – að hafa tvö dýpkunarskip að störfum, yfir þennan árstíma, þegar ein lægð getur eyðilagt vikuvinnu þessara dýpkunarskipa. Þar fara forgörðum tugir milljóna króna. Ég held að nú sé rétt að hugsa málið uppá nýtt.