Ef ráðist yrði í breytingarnar síðar yrði kostnaðurinn meiri
Ljós­mynd/​Crist
Samþykkt hefur verið 830 milljóna fjárveiting til að greiða fyrir stærri rafgeyma í nýja Vestmannaeyjaferju og tengibúnað fyrir hleðslu þeirra úr landi, svo sigla megi ferjunni milli lands og Eyja á rafmagni eingöngu. Þetta kemur fram í minnisblaði Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis til Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, en rúv greindi frá.

Þar segir að nýr Herjólfur hafi upphaflega verið hannaður sem tvinn-ferja. Rafmótorar knýja skrúfur skipsins, en ætlunin var að raforkan kæmi frá tiltölulega litlum rafgeymum sem dísilknúnar rafstöðvar ferjunnar myndu hlaða. Hins vegar var gert ráð fyrir auka rými í ferjunni, svo hægt væri að setja í hana fleiri og stærri rafgeyma síðar meir, sem þá yrði hægt að hlaða með frá landi með þar til  gerðum búnaði.

Fram kemur að verð á rafgeymum hafi lækkað hratt að undanförnu, og eins og greint hefur verið frá í fréttum gerði skipastöðin Vegagerðinni tilboð snemma árs 2018 um að ljúka þessari rafvæðingu hins nýja Herjólfs áður en hann verður afhentur.

Áætlað er að kostnaðurinn við stærri rafgeyma, hleðslubúnað og uppsetningu hans í Landeyjahöfn og Vestmannayjum nemi um 830 milljónum króna. Gert gert ráð fyrir að vegna minni orkukostnaðar verði geymarnir og hleðslubúnaðurinn farin að skila beinum fjárhagslegum ávinningi innan tíu ára. Ef ráðist yrði í breytingarnar síðar, eins og upphaflega var ætlunin, yrði kostnaðurinn meiri, segir í minnisblaðinu, auk þess sem taka þyrfti ferjuna úr notkun á meðan unnið væri að breytingunum. Því var ákveðið að fara í verkefnið.

Er það meðal annars gert með vísun til sáttmála ríkisstjórnarinnar um stefnu í loftslagsmálum, þar sem meðal annars er kveðið á um orkuskipti í ferjum.

Nýjustu fréttir

Bríet Björk, Caritas Rós og Kolbrá bestar
Ykkar er valið
Niðurstöður prófa – Vestmannaeyjar í einstakri stöðu
Að alast upp í Vestmannaeyjum 
Halldór Jón aftur í ÍBV
Fluttu hús í heilu lagi
Sjáv­ar­af­urð­ir: Ágæt­is aukn­ing í fe­brú­ar
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.