Efnahagsaðgerðir í þágu Suðurlands
27. apríl, 2020
Ásmundur Friðriksson alþingismaður

Þegar ráðist er í jafn umfangsmiklar efnahagsaðgerðir og ríkisstjórnin hefur nú gert í tveimur þrepum og stórir atvinnuvegir eins og ferðaþjónustan hafa nær stöðvast er auðvelt að sjá hið smáa en ekki hið stóra. Það er heildarsamhengið sem skiptir máli og hvernig mismunandi aðgerðir spila saman og veita stuðning þar sem hans er þörf.

Þrátt fyrir að margar stærstu efnahagsaðgerðirnar séu ekki merktar tilteknum geirum eða landssvæðum þá er ekki þar með sagt að þær séu ekki hugsaðar til að mæta einmitt þeim. Meginþungi aðgerðanna og tugmilljarðarnir allir fara að langstærstum hluta í sjálfar efnahagsaðgerðirnar, þ.e. hlutastarfaleiðina, lokunarstyrki til fyrirtækja sem var gert að hætta starfsemi vegna sóttvarna, brúarlána til atvinnulífs, laun í sóttkví og önnur úrræði af þeim toga. Þessi úrræði nýtast best þar sem þörfin er mest. Þannig er það til dæmis ferðaþjónustan sem hefur að stærstum hluta nýtt sér úrræði stjórnvalda og sömuleiðis hafa atvinnuveitendur á Suðurlandi og Vestmannaeyjum getað nýtt sér þau fyrir sitt starfsfólk. Það kemur í ljós að aðgerðir stjórnvalda virka þótt eðli þeirra og aðstæður sé auðvitað með þeim hætti að ekki geti vakið ánægju hjá nokkrum manni.

 

Bæði vörn og sókn

Aðgerðir stjórnvalda miða að því að verja það sem varið verður en líka að nota þennan tíma til að sækja fram. Alls kyns hvatar hafa verið settir inn í aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar til að örva atvinnulífið, m.a. var gildandi heimild til endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna við íbúðarhúsnæði hækkuð og útvíkkuð á tímabilinu 1. mars til og með 31. desember 2020. Heimildin var m.a. látin taka til frístundahúsnæðis og samhliða var mannúðar- og líknarfélögum, íþróttafélögum, björgunarsveitum o.fl. veitt heimild til endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu manna sem innt er af hendi á byggingarstað við byggingu, viðhald eða endurbætur á mannvirkjum sem alfarið væru í eigu þeirra. Samkvæmt upplýsingum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga er talið raunhæft markmið að sveitarfélög geti ráðist í 15 milljarða króna flýtiframkvæmdir til þess að bregðast við efnahagsástandinu, á Suðurlandi og Vestmannaeyjum eru sveitarfélögin að skoða þá möguleika sem þau hafa til að auka við framkvæmdir en mörg þeirra standa ágætlega til að mæta þeirri áskorun að bæta nú í fjárfestingar. Til þess að liðka fyrir markmiði sveitarfélaga um flýtiframkvæmdir er nú lagt til að sveitarfélög eða stofnanir og félög sem alfarið eru í eigu þeirra, öðlist tímabundinn rétt til endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna á byggingarstað vegna byggingar, viðhalds eða endurbóta á öðru húsnæði en íbúðar- og frístundahúsnæði, sem alfarið er í eigu þeirra. En það er líka dæmi um gríðarlegt atvinnuleysi og lítið svigrúm til fjárfestinga hjá nokkrum sveitarfélögum á Suðurlandi sem ríkisvaldið verður að skoða sérstaklega.

 

Sértækur stuðningur við sveitarfélögin

Í frumvarpi til fjáraukalaga er lagt til að fjárheimildir málefnasviða verði auknar um samtals 13.210 m.kr., þar af um 8,4 ma. kr. í félagslegar aðgerðir þar sem ein fjárheimild lýtur að sértækum stuðningi til sveitarfélaga, samtals 1 ma. kr. Þar vegur þyngst tillaga um að verja 600 m.kr., til sveitarfélaga í því skyni að gera þeim kleift að veita styrki til tekjulágra heimila, þannig að öll börn geti stundað íþróttir og aðrar tómstundir óháð efnahag í sumar. Nýlega veittu stjórnvöld 500 m.kr. til íþrótta- og æskulýðsstarfs sem tryggja á stuðning við rekstur og starfsemi þeirra aðila sem því sinna. Með þessum aðgerðum er reynt að sporna við því að um 8 þúsund börn um land allt helltist úr tómstundastarfi þegar þrengir að fjárhag fjölskyldna á þessum erfiðum tímum. Þá er rétt að minna á að hlutabótaleiðin hefur gagnast starfsmönnum íþróttafélaga sem þar eru í fullu starfi. Nú er verið að kanna hvernig megi mæta hlutastörfum hjá íþróttahreyfingunni sem oft er annað starf viðkomandi starfsmanns og fellur ekki beint að lögum um hlutastarfaleiðina.

Þrátt fyrir að stjórnvöld noti allt sitt afl til að milda höggið af þeim miklu erfiðleikum sem nú ganga yfir fólk og fyrirtæki er alveg ljóst að hvergi í heiminum verður hægt að stoppa upp í það mikla gat sem myndast í atvinnulífinu þegar stórir öflugir atvinnuvegirnir leggjast tímabundið í frost. Við verðum að standa saman og efla Ísland með því að ferðast innanlands og beina viðskiptum okkar að íslenskri vöru og þjónustu. Við verðum líka að muna að veiran drepur ekki sterka innviði okkar, hugvit og athafnamennsku. Suðurland er helsta ferðamanna- og matvælaframleiðslusvæði landsins og það er skylda okkar að standa vörð um mikilvægi þessara greina. Áætlun Herjólfs er lykillinn að ferðaþjónustunni í Eyjum og það verður að tryggja þær samgöngur sem Landeyjarhöfn gefur kost á og hefur gengið betur en bjartsýnustu menn gátu vonað. Afkomu Herjólfs verður að tryggja með öllum ráðum. Þó við bognum um tíma þá brotnum við ekki. Saman höfum við sigur þegar upp er staðið.

Ásmundur Friðriksson alþingismaður.

 

 

 

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst