Karlmaður um tvítugt situr í varðhaldi hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum eftir að lögreglumenn höfðu ekið fram á tvo menn takast á um sjöleytið í morgun. Lögreglumennirnir stöðvuðu átökin og handtóku annan manninn í kjölfarið. Hinn var með mar á höfði en taldi sig ekki þurfa á aðstoð lækna að halda og hélt því til síns heima.