Tekin hefur verið ákvörðun um að fella niður seinni ferðir Herjólfs í dag vegna veðurs og sjólags. Ferðirnar sem um ræðir voru áætlaðar kl. 16:00 frá Vestmannaeyjum og kl. 19:45 frá Þorlákshöfn. Farþegar sem áttu bókað eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu Herjólfs til þess að færa bókun sína, segir í tilkynningu.
Þar segir ennfremur að ákvörðun sem þessi sé alltaf tekin með hagsmuni farþegar og áhafnar í huga, vonum við að því sé sýndur skilningur. Herjólfur siglir til/frá Þorlákshöfn á morgun samkvæmt áætlun og þar til annað verður tilkynnt.