Allt undir hjá ÍBV gegn KA í dag
Frá síðasta leik í einvíginu. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson

ÍBV sækir KA heim í öðrum leik liðanna í 8-liða úrslitum úrslitakeppni Olís deildar karla í handbolta í dag, sunnudaginn 29. mars. Leikurinn fer fram í KA-heimilinu á Akureyri og hefst klukkan 17:00.

Eyjamenn eru komnir með bakið upp við vegg eftir dramatískt tap í fyrsta leik liðanna í Vestmannaeyjum á miðvikudag, þar sem KA hafði betur 33-34 eftir tvíframlengdan leik.

Staðan í einvíginu er því 1-0 fyrir KA og ljóst að allt er undir hjá ÍBV. Með sigri knýja Eyjamenn fram oddaleik, en með tapi lýkur þeirra þátttöku í úrslitakeppninni.

Handknattleiksdeild ÍBV hefur kallað eftir stuðningi og hvetur Eyjamenn til að mæta norður og styðja liðið í þessum lykilleik. Ljóst er að leikurinn verður hörkuskemmtun þar sem baráttan verður í fyrirrúmi frá fyrstu mínútu.

„Það er allt undir í þessum leik og við þurfum alla orku, alla trú og alla baráttu,“ segir meðal annars í hvatningu frá deildinni, sem telur einvígið langt frá því að vera búið.

Greint var frá því í liðinni viku að ÍBV verði áfram án leikstjórnandans Andra Erlingssonar sem er frá vegna meiðsla á ökkla. Fjarvera hans vegur þungt, en liðið sýndi í fyrsta leik að það hefur burði til að veita KA harða keppni.

Í þeim leik var Dagur Arnarsson markahæstur Eyjamanna með tíu mörk og Petar Jokanovic átti stórleik í markinu með 20 varin skot. Leikurinn hefst klukkan 17:00 og verður í beinni útsendingu í Sjónvarpi Símans. Nánari umfjöllun verður á Eyjafréttum að leik loknum.

Nýjustu fréttir

Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
50 ár frá opnun sundlaugar Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.