ÍBV tapaði gegn Val í lokaleik Olís deildarinnar
Sandra Erlingsdóttir skoraði 12 mörk fyrir ÍBV í dag. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í handbolta tapaði gegn val á útivelli í lokaleik Olís deildar kvenna í dag. Leiknum lauk með 30-28 sigri Valskvenna.

Valskonur byrjuðu leikinn betur og voru 6-3 yfir eftir tíu mínútur. Eyjakonur komu til baka og var staðan jöfn, 10-10, eftir 20 mínútna leik. Valskonur náðu aftur upp forystu sinni og leiddu í hálfleik 17-12.

Valskonur voru áfram með yfirhöndina í síðari hálfleik og leiddu með fjórum mörkum, 20-16, þegar tíu mínútur voru liðnar. Eyjakonur stigu heldur betur upp og jöfnuðu leikinn í 22-22 þegar stundarfjórðungur var til leiksloka. Lokamínútur leiksins voru jafnar en Valskonur voru sterkari á lokametrunum og unnu að lokum tveggja marka sigur. Lokatölur leiksins 30-28.

ÍBV lýkur keppni í öðru sæti Olís deildarinnar með 32 stig. Valskonur urðu deildarmeistarar með 38 stig og fór bikarinn á loft í leikslok. 

Sandra Erlingsdóttir átti stórleik í liði ÍBV og var markahæst með 12 mörk. Amalia Frøland átti einnig mjög góðan leik í liði ÍBV og varði 13 skot. 

Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 12 mörk, Birna Berg Haraldsdóttir 3, Klara Káradóttir 3, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 2, Ásta Björt Júlíusdóttir 2, Birna María Unnarsdóttir 2, Amelía Dís Einarsdóttir 2, Ásdís Halla Hjarðar 1, Britney Emilie Florianna Clots 1, Lilja Kristín Svansdóttir 1. 

Bæði þessi lið eru búin að tryggja sig í undanúrslit úrslitakeppninnar en liðin í 1. og 2. sæti deildarinnar sitja hjá í fyrstu umferðinni. Undanúrslitin fara fram um miðjan apríl. 

Nýjustu fréttir

Frábæru Íslandsmóti í sveitakeppni í Boccia lokið
Átta dagar og engin svör frá ráðherrum
Dýpkun gekk illa í morgun
Kjarnaborun hafin í Eyjum
Höfum áhrif – Framtíðin er í okkar höndum
Sex hópar frá FÍV tóku þátt í vörumessu í Smáralind
Spurt og svarað: Hannes Kristinn frá Sjálfstæðisflokknum
HSU: Gervigreind styður við myndgreiningu og bráðaþjónustu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.