Í dag, laugardag, klukkan 13:00 tekur B-lið ÍBV á móti HK2 í 16 liða úrslitum Eimskipsbikarsins. Margir fyrrum leikmenn ÍBV, sem telja sig ennþá vera algjöra snillinga, leika með B-liðinu en meðal þeirra sem hafa verið kenndir við liðið má nefna þá Guðfinn Kristmannsson, Erling Richardsson og Gunnar Sigurðsson, sem koma allir úr höfuðborginni til að spila. Hér heima eru snillingar eins og Svavar Vignisson og svo minni spámenn eins og Elliði bróðir hans. Meðal annarra leikmanna má nefna Björgvin Þór Rúnarsson, Daða Pálsson, Sigmar Helgason, Arnar Pétursson, Arnar Richardsson, Ingólf Jóhannesson og síðast en ekki síst Sigmar Þröst Óskarsson.