Eldgosið sést vel frá Eyjum
IMG_4268
Eldgos á Reykjanesskaga séð frá Vestmannaeyjum. Eyjar.net/Tryggvi Már Sæmundsson

Eldgos hófst upp úr klukkan 6 í morgun milli Sundhnúks og Stóra-Skógfells á Reykjanesi. Eldgosið sést vel frá Vestmannaeyjum líkt og meðfylgjandi myndir bera með sér.

Í tilkynningu Veðurstofunnar frá því snemma í morgun segir að klukkan 5:30 í morgun hafi hafist áköf smáskjálftavirkni norðaustan við Sýlingarfell. Um 30 mínútum síðar hófst eldgos á sömu slóðum. Fyrstu mínúturnar lengdist sprungan bæði til norðurs og suðurs.

Út frá fyrstu fréttum úr eftirlitsflugi Landhelgisgæslunnar er gosið á sömu slóðum og gaus 18. desember. Sprungan er um 3 km löng, liggur frá Sundhnúk í suðri til austurenda Stóra-Skógfells. Hraun rennur mestmegnis til vesturs á þessu stigi.

Nýjustu fréttir

„Meira af loðnu en maður hefur séð í langan tíma“
Eyjalistinn boðar til félagsfundar
Góð aðsókn á fundi Eyþórs
Karla- og kvennalið ÍBV töpuðu í Lengjubikarnum
Heimaey í dag
Besta rekstrarafkoma í 15 ár
Vel heppnaðri loðnuvertíð að ljúka
Utankjörfundar atkvæðagreiðsla á Hraunbúðum og sjúkrahúsi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.