Elín Sólborg Eyjólfsdóttir var í gærkvöldi valin Sumarstúlka Vestmannaeyja árið 2010. Fór keppnin fram í Höllinni og var þetta í 24. skiptið sem þessi keppni fer fram. Þá var Sveinbjörg Ósk Hauksdóttir valin Sportstúlkan, Helga Sigríður Hartmannsdóttir var valin Ljósmyndafyrirsætan, Agnes Guðjónsdóttir var Bjartasta brosið og Sigurbjörg Jóna Vilhjálmsdóttir var valin Vinsælasta stúlkan.