Grótta rúllaði yfir ÍBV, 27-16 í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar kvenna í handbolta. Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn, lítið var skorað og eftir 15. mínútna leik hafði ÍBV aðeins skorað þrjú mörk, gegn sex mörkum frá Gróttu. Grótta var alltaf skrefi á undan ÍBV í öllum sínum gjörðum. Grótta náði mest fjögura marka mun í fyrri hálfleik, 12-8 en Elín Anna Baldursdóttir náði að minnka muninn úr víti þegar leiktíminn var runnin út í fyrri hálfleik og þriggja marka munur í leikhlé staðreynd.
ÍBV byrjaði vel í seinni hálfleik og náði að minnka muninn niður í eitt mark 12-11. ÍBV hafði nokkur tækifæri til að jafna leikinn en komust ekki lengra. �?á tók við góður kafli Gróttu og með Írisi Björk Símonardóttur í stuði í markinu var lítil von fyrir ÍBV. Stelpurnar gerðu sig seka um allt of mörg mistök í leiknum og Grótta refsaði grimmt. Gróttu stelpur voru einnig mistækar en ÍBV náði ekki að nýta sér það. Grótta sigraði að lokum örugglega 27-16.
Næsti leikur liðanna fer fram í Eyjum á laugardaginn klukkan 16:00
Mörk ÍBV skoruðu þær; Díana Dögg Magnúsdóttir 5, Vera Lopes 3, Ester �?skarsdóttir 3, Drífa �?orvaldsdóttir 2, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 1, Arna �?yrí �?lafsdóttir 1 og Elín Anna Baldursdóttir 1.