Séra Kristján segir upp sem vígslubiskup í Skálholti
Kristján er fyrrum Eyjaprestur, kjörinn prestur í Vestmannaeyjum 12. júlí 1998 og tók við embætti vígslubiskups árið 2018.

Séra Kristján Björnsson, vígslubiskup í Skálholti, hefur sagt embætti sínu lausu. Það gerir hann í kjölfar setningar nýrra starfsreglna um vígslubiskupa sem samþykktar voru á nýliðnu kirkjuþingi. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Kristján er fyrrverandi Eyjaprestur. Hann var kjörinn prestur í Vestmannaeyjum 12. júlí 1998 og tók við embætti vígslubiskups árið 2018.

„Ég get staðfest að ég hef beðist lausnar frá embætti vígslubiskups í Skálholti og hefur biskup Íslands fallist á það,“ segir Kristján í samtali við Morgunblaðið.

„Fyrst þessar nýju reglur eru komnar fram finnst mér eðlilegt að kirkjan fái að innleiða þær. Þetta er veruleg breyting sem samþykkt hefur verið á kirkjuþingi og ég ætla ekki að standa gegn nýjum tíma,“ segir Kristján.

Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.

Nýjustu fréttir

Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
Þrjár uppsagnir hjá Vestmannaeyjabæ úrskurðaðar ólögmætar
Skráning hafin fyrir hrekkjavökuna
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.