Elliðaey fullkominn staður
Á vefnum Viralnova.com er skemmtileg grein um Elliðaey undir fyrirsögninni �??If You Hate Your Neighbors Or Fear A Zombie Apocalypse, This Isolated House Is Absolutely Perfect�?? eða ef þú hatar nágrannana eða hræðist heimsyfirráð uppvakninga, þá er þetta einangraða hús algjörlega fullkomið og er þar átt við veiðikofann í Elliðaey.
Reyndar eru staðreyndirnar ekkert að þvælast fyrir greinarhöfundi, sem segir að fyrir um 300 árum hafi fimm fjölskyldur búið í eynni, bjuggu í kofum og lifðu á fiski, búfénaði og lunda.
�??Mörgum árum seinna ákvað Veiðifélag Íslands að byggja veiðikofa á eyjunni fyrir meðlimi félagsins til nota yfir lundaveiðitímann. Veiðikofinn er eina byggingin sem eftir stendur á þessari einangruðu eyju. �?ar er ekkert rafmagn og engin tenging við veraldarvefinn…en þar er notalegt gufubað. �?ví miður mega aðeins félagar í Veiðifélagi Íslands nota aðstöðuna, þannig að helgarferð er ekki inni í myndinni fyrir okkur. En eitt er á hreinu – þetta er fullkominn felustaður fyrir uppvakningum,�?? segir lauslega þýtt í greininni.

Nýjustu fréttir

Eyjafiskur í mikilli sókn vestanhafs
Segja forsendur útboðs heilsuræktar hafa breyst verulega
ÍBV tekur á móti ÍR
Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Fermingar á næsta leyti
Bent kemur fram á Hljómey!
Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.