Eyjamennirnir Elliði Snær Viðarsson og Elmar Erlingsson voru báðir í eldlínunni með sínum félagsliðum í þýska handboltanum í dag.
Elliði Snær og félagar hans í Gummersbach unnu Bergischer á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni, 39-30. Elliði Snær skoraði þrjú mörk. Gummersbach er í fjórða sæti deildarinnar með 39 stig. Bergischer er með 14 stig í fimmtánda sæti.
Elmar var markahæstur með fimm mörk í tapi Nordhorn-Lingen gegn Lubeck-Schwartau, á útivelli í þýsku B-deildinni. Leiknum lauk með fimm marka sigri, 29-24, Lubeck-Schwartau. Nordhorn situr í sjötta sæti deildarinnar með 32 stig en Lubeck-Schwartau er í 11. sæti með 25 stig.