Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
2. Bundsliga: HSG Nordhorn-Lingen - TV Großwallstadt 25:25
Elmar Erlingsson í leik með HSG Nordhorn-Lingen.

Handboltamaðurinn og Eyjamaðurinn Elmar Erlingsson hefur framlengt samningi sínum við þýska B-deildarliðið HSG Nordhorn-Lingen. Samningurinn gildir til sumarsins 2027. Félagið greindi frá tíðindunum á heimasíðu sinni fyrr í dag.

Elmar er 20 ára gamall leikstjórnandi sem gekk í raðir Nordhorn-Lingen frá ÍBV þar síðasta sumar. Hann hefur skorað 53 mörk á þessu tímabili.

Í tilkynningu Nordhorn-Lingen segir Elmar ,, Mér líður einfaldlega vel hjá félaginu og hef ekki fundið betra tækifæri fyrir mig neins staðar annars staðar”.

Nordhorn-Lingen situr 5. sæti þýsku B-deildarinnar. Fyrsti leikur liðsins í deildinni á nýju ári er á sunnudaginn gegn Grosswallstadt.

 

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.