Breytingar verða á yfirstjórn embættis sýslumanns í Vestmannaeyjum frá 1. febrúar næstkomandi þegar Lára Huld Guðjónsdóttir, sýslumaður, hverfur tímabundið til annarra starfa hjá sýslumannaráði. Sýslumaðurinn á Suðurlandi, Kristín Þórðardóttir, verður tímabundið settur sýslumaður í Vestmannaeyjum frá 1. febrúar til 31. desember.
„Í samstarfi við dómsmálaráðuneytið mun Lára Huld m.a. hafa með höndum að greina rekstur sýslumannsembættanna með tilliti til aukinnar skilvirkni og hagræðingar ásamt því að greina tækifæri fyrir rafræna þjónustu,” segir í tilkynningu á vefsíðu Stjórnarráðsins.
„Þessar breytingar eru í samræmi við áform dómsmálaráðherra, sem hún hefur kynnt bæði ríkisstjórn og sýslumönnum, um stefnumörkun í stjórnsýslu ríkisins í héraði sem sýslumönnum hefur verið falin.
Dómsmálaráðherra mun einnig leggja til við Alþingi á yfirstandandi þingi að gerðar verði breytingar á lögum um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði þannig að ráðherra verði á hverjum tíma heimilt að skipa sama sýslumann yfir fleiri embætti til allt að fimm ára í senn.”
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.