Endurbygging skipalyftunnar tefst hugsanlega um 3-4 vikur
Þil sem rammar inn stæði skipalyftunnar, sem senn á að endurbyggja, gaf sig í vikunni þegar dæluskipið Skandia var við dýpkunarframkvæmdir. Allt bendir til þess að dýpkað hafi verið of mikið þannig að þilið gaf sig. Ólafur Þór Snorrason, framkvæmdastjóri Umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar segir að þrátt fyrir það, tefjist endurbygging skipalyftunnar í mesta lagi um aðeins 3-4 vikur.