Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Nemendur fá pláss til að tjá hugmyndir sínar í gegnum listina og þannig efla sjálfstraust sitt til að móta framtíð sína með eigin rödd.

Aðsend grein

Jóna Heiða Sigurlásdóttir

Áfanginn Listir og menning er þverfaglegur skylduáfangi á 2. þrepi á bóknámsbrautum FÍV, þar sem stokkið er ofan í suðupott þar sem hráefnin eru: mannfræði, félagsvísindi, stjórnmál, listasaga, dægurmenning og svo mætti lengi telja. 

Margir spyrja sig e.t.v. hvaða erindi áfangi eins og Listir og menning eigi við okkur í nútímasamfélagi og hvað þá sem skylduáfangi? Svarið er einfalt; Listir og menning eru áttavitar. 

Í litlum samfélögum eins og Vestmannaeyjum skipta listir og menning ótrúlega miklu máli. Þau eru ekki einungis skemmtilegt krydd í daglegu lífi fólks heldur grunnstoðir sem móta sjálfsmynd okkar, efla samstöðu og skapa tengingar á milli kynslóða. 

Í áfanganum fá nemendur tækifæri til að kynnast því hvernig listsköpun og menningararfur hafa áhrif á samfélög og sjá um leið hvernig þau geta lagt sitt af mörkum til lifandi menningarlífs og þannig haft áhrif á samfélagið. Unga fólkið okkar lærir að sjá hvernig listir geta verið leið til að segja sögu samfélagsins, varðveita hefðir og skapa nýjar en einnig að læra um jólahefðir liðinna tíma, sögu Þrettándans og Þjóðhátíðar. Við skoðum einnig daglega lífið í gegnum listagleraugun og sjáum t.d. hversu söngur og tónlist hafa verið sterkur þáttur í menningu okkar og kynnumst t.d. helsta tónskáldi Eyjanna, Oddgeiri Kristjánssyni. 

Samtímalist aðgengilegri 

Eitt af því mikilvæga í áfanganum Listir og menning er að kynna nemendum samtímalist á þann hátt að hún verði aðgengileg og áhugaverð. Margir upplifa samtímalist sem fjarlæga eða jafnvel óskiljanlega en þegar hún er skoðuð í samhengi við söguna verður allt í einu auðveldara að sjá rökrétt hvernig list hefur þróast, hvers vegna hún lítur svona út í dag og hvaða samtal hún á við samfélagið. Með því að skoða verk samtímalistamanna í ljósi fortíðarinnar læra nemendur að sjá hvernig list hefur alltaf verið spegill samfélagsins – hvort sem við erum að horfa á hellamálverk, kirkjulist, þjóðlega skreytilist, poppmenningu eða prentverk samtímans. Þegar þeir sjá hvernig listamenn hafa alla tíð brugðist við umhverfi sínu, sögulegum atburðum, tilfinningum eða samfélagslegum áskorunum verður auðveldara að tengja nútímaverk við eitthvað sem þeir þekkja þegar. Með þessum nálgunum, þ.e. að tengja nýtt við gamalt, nútímann við fortíðina, er reynt að vekja áhuga nemenda á samtímalist á nýjan hátt þannig að þeir fari að sjá að list er ekki eitthvað „fyrir aðra“, heldur lifandi og í stöðugu samtali við það sem þeir þekkja úr eigin umhverfi. Þá verður listsköpun ekki óljós fræðigrein heldur verkfæri til að skilja heiminn, túlka hann og taka þátt í honum. 

Sömuleiðis fá nemendur pláss til að tjá hugmyndir sínar í gegnum listina og þannig efla sjálfstraust sitt til að móta framtíð sína með eigin rödd. Við erum nefnilega alltaf að sjá hversu öflug ungmenni eru og hve mikil áhrif þau geta haft þegar þau fá pláss; þegar tónleikar fylla sali, listsýningar fá mikla athygli og ungir einstaklingar eru sífellt að skrifa, syngja, taka upp, skapa og hanna, svo ekki sé minnst á íþróttaviðburði. Því við megum ekki heldur gleyma að íþróttir eru menning.  

Vestmannaeyjar eru frábært dæmi um samfélag þar sem listir og menning skipta sköpum. Þrátt fyrir að vera lítið samfélag, hafa Eyjar lengi verið þekktar fyrir sterka menningarvitund og fjölbreytt listalíf. Reyndar sýna rannsóknir það að minni samfélög eiga auðveldara með að halda í heiðri menningararfi, hefðum og siðum þannig að það er kannski smæðin sem gerir okkur kleift að viðhalda menningararfi okkar. Listir og menning eru lífæð litla samfélagsins og Vestmannaeyjar standa og falla með því að þessi lífæð haldist sterk, sýnileg og í sífelldri þróun. 

Listir og menning eru hvort tveggja áttaviti. Menningin leiðir okkur sem samfélag en listirnar hjálpa einstaklingum að finna sína eigin stefnu. Menningin sýnir okkur upprunann og samhengi við söguna en listirnar gefa okkur pláss til að kanna nýjar og ótroðnar slóðir. 

Nýjustu fréttir

Fjörugt föstudagskvöld með SSSól í Eyjum
Gætti vandlega að græna litnum á Ísleifunum
Sjómannadagskrá laugardags
Sjómannskonur: Ásta Jóna
Bærinn skýrir ástandið í Búastaðagryfju
Blómaakkeri prýðir Stakkagerðistúnið fyrir sjómannadaginn
Sjómannskonur: Harpa Hjartardóttir
Fækkun skemmtiferðaskipa fram undan

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.