Uppstillingarnefnd Eyjalistans hefur nú lokið störfum og var tillaga að framboðslista kynnt og lögð fram til samþykktar á fjölmennum félagsfundi seinnipartinn í dag. Stjórn Eyjalistans tilkynnir hér með að listinn var samþykktur samhljóða og mikil ánægja var á meðal félagsfólks með listann. Þetta kemur fram í tilkynningu frá framboðinu.
Arna Huld Sigurðardóttir, formaður kom fram þökkum frá uppstillingarnefnd um þær fjölmörgu ábendingar sem þeim barst í ferlinu. Að auki þakkaði hún núverandi bæjarfulltrúum, Njáli Ragnarssyni og Helgu Jóhönnu Harðardóttur fyrir þeirra góðu vinnu en þau starfa að sjálfsögðu áfram fyrir Eyjalistann út þetta kjörtímabil.
Stjórn listans skynjar mikinn meðbyr og við förum með gleði og jákvæðni inn í komandi kosningar. Arndís María Kjartansdóttir er nýr oddviti listans en hún er kennari, löggiltur fasteigna, fyrirtækja- og skipasali ásamt því að hún nemur nám í jákvæðri sálfræði. Stjórnin bindur miklar vonir við gott samstarf við Arndísi ásamt öllum þeim sem bjóða sig fram sem og félagsfólki!
Framundan hjá Eyjalistanum er áframhaldandi málefnavinna og virkt samtal við félagsfólkið okkar! X-E í vor!
Framboðslisti Eyjalistans í heild sinni:
Arndís María Kjartansdóttir. Framhaldsskólakennari & löggiltur fasteigna, fyrirtækja- og skipasali. Meistaranemi í jákvæðri sálfræði.
Anton Örn Björnsson. Kennari & tómstunda- og félagsmálafræðingur.
Erlingur Guðbjörnsson. Rekstrarstjóri & varabæjarfulltrúi.
Hildur Rún Róbertsdóttir. Leikskólakennari & varabæjarfulltrúi.
Jessý Friðbjarnadóttir. Kennari.
Ágúst Erling Kristjánsson. Húsasmiður.
Eyrún Haraldsdóttir. Tómstunda- og félagsmálafræðingur.
Zindri Freyr Ragnarsson Caine. Guðfræðingur & bókavörður.
Þorsteinn Ívar Þorsteinsson. Matreiðslumaður.
Þórdís Jóna Guðmundsdóttir. Hjúkrunarfræðingur.
Hafdís Víglundsdóttir. Sjúkraliðanemi & starfsmaður á búsetukjarna.
Bergþóra Sigurðardóttir. Öryrki.
Stefán Jónasson. Eldri borgari og fyrrum bæjarfulltrúi.
Hafdís Ástþórsdóttir. Hársnyrtimeistari & móðir.
Bjartey Hermannsdóttir. Bókari.
Friðrik Björgvinsson. Framkvæmdastjóri.
Hrefna Valdís Guðmundsdóttir. Skjalavörður
Hörður Þórðarsson. Leigubílstjóri.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.