Enn hægt að laga og nálgast hlutina af skynsemi
Ísfélagið tók á móti nýrri og glæsilegri Heimaey VE í síðustu viku. Gæti orðið bið á næsta skipi.

„Það er mikilvægt að fyrirtækin og stjórnvöld séu að ræða um sömu hlutina og vandað sé til verka. Þegar mesta hækkunin á auðlindagjöldum bitnar á fyrirtækjum í Vestmannaeyjum segir það sig sjálft að slíkt hefur áhrif og hefur í raun þegar haft það,“ segir Einar Sigurðsson stjórnarformaður Ísfélagsins hf. aðspurður hvers hann sakni í umræðunni um núverandi frumvarp um veiðigjöld. Einar er einn frummælenda á fundi sem Eyjafréttir standa fyrir í Akóges um veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar.

„Fyrirtækin draga úr fjárfestingum og minni áhugi er til fjárfestinga í framtíðinni. Það verður líka að vera hægt að treysta orðum forsætisráðherra og þingmanna í kjördæminu um að ekki verði farið af offorsi í breytingar og samráð verði haft. Það sést t.d. núna á röngum tölum um makríl að það var ekki gert. Það eru alveg tækifæri að laga slíkt og nálgast hlutina af skynsemi.“

Einar bætir því einnig við að eins og staðan er í dag borgar landvinnslan á Íslandi hæstu launin af þeim löndum sem við keppum við auk þess að skiptaprósenta á skipum er hæst á Atlantshafinu. Það sé ekki sjálfgefið að hægt sé að standa undir því ásamt öllu öðru.

Fundurinn er á morgun, fimmtudag í Akóges og hefst kl. 17.00.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.