Kjördæmavika er haldin tvisvar á hverju löggjafarþingi, einu sinni að hausti og einu sinni eftir áramót. Tilgangur kjördæmaviku er að gefa þingmönnum tækifæri til að ferðast um kjördæmi sín og heimsækja fólk og fyrirtæki. Engir þingfundir eru haldnir í kjördæmavikum.
Svohljóðandi upplýsingar má finna á Facebook-síðu Alþingis um fyrirbærið kjördæmaviku: Þingmenn allra kjördæma þeysast um sín héruð og hitta kjósendur til að ræða þau málefni sem brenna á fólki hverju sinni. Markmiðið er fallegt – ef kjördæmavikunni er sinnt vel.
Kjördæmin eru misstór og Suðurkjördæmið er það stærsta landfræðilega á Íslandi. Tíu þingmenn sitja á Alþingi fyrir kjördæmið og eru þeir sennilega að nýta allan þann tíma sem þeir hafa til að heimsækja sem flesta staði og hitta sína kjósendur, fólkið sem kýs þau á Alþingi. Á samfélagsmiðlum hef ég séð þingmenn allra flokka heimsækja sveitarfélög á Reykjanesi og á suðurlandi og það er vel.
Ef minnið bregst mér ekki var það síðasta haust sem enginn þingmaður kom til Eyja í kjördæmavikunni. Þá funduðu bæjarfulltrúar okkar með þingmönnum í þinghúsinu, vikuna eftir kjördæmavikuna. Frá því kjördæmavikan hófst nú hef ég svipast um eftir þingmönnum okkar hér í Eyjum. Ég hef leitað og hlustað af athygli hvort ég verði var við þau. Nú er fimmtudagur og enn er ég að leita. Mig grunar að þau sjáist ekki hér í Eyjum í þessari kjördæmaviku.
Ástæðan er líklega sú að samgöngur á veturna eru erfiðar og siglt er, að öllum líkindum, til Þorlákshafnar. Að einhverju leyti skil ég þau vel, það er ekkert skemmtilegt að sigla til Þorlákshafnar. En það er sú höfn sem við Eyjamenn þurfum að treysta á þegar ófært er í Landeyjahöfn. Þá þurfum við að sigla þangað eða þaðan þegar erindi okkar í borgina eru mikilvæg.
Ég held þó í vonina að þau láti sjá sig í Eyjum áður en þessi vika endar, því eðlilega vilja kjósendur hér eiga samtal við sína kjörnu fulltrúa. Það er fjandi fúlt ef samgöngur til Eyja eru að stoppa okkar góðu þingmenn frá því að koma hingað, ég bara hreinlega trúi því ekki fyrr en ég fæ það staðfest að svo sé!
Kjartan Vídó
Frambjóðandi í 3.–4. sæti í prófkjöri sjálfstæðisfélaganna.