Evrópu-nóvember hjá ÍBV :: Allir Evrópuleikirnir leiknir erlendis
Nóvember gengin í garð og verður í nógu að snúast hjá karla- og kvennaliðum ÍBV í handboltanum. �?ann 12. nóvember halda stelpurnar í mfl. kvenna til Serbíu og leika tvo leiki við serbneska liðið WHC Knjaz Milos Arandjelovac 3. umferð Challenge. Leikið verður 14. og 15. nóvember. Áður en að ferðinni kemur munu stelpurnar leika þrjá útileiki í deildinni gegn Haukum, Selfoss og HK. Næsti heimaleikur þeirra er gegn Fjölni 21. nóvember.
Strákarnir í mfl. karla munu svo halda til Lisbon í Portúgal í lok nóvember að etja kappi við Benfica í 3. umferð Challenge Cup. Samkomulag er um að báðir leikirnir verði leiknir ytra og eru leikdagarnir ákveðnir 27. og 28. nóvember. Áður en að þessum leikjum kemur mun liðið leika 3 deildarleiki í mánuðinum.
�?að er því nóg um að vera hjá meistaraflokkum ÍBV í mánuðinum og enn gæti bæst við þar sem eftir er að dagsetja leiki liðanna í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar.
Hvetjum stuðningsmenn ÍBV til að halda áfram að mæta vel á völlinn og styðja við bakið á okkar liðum.
Áfram ÍBV, alltaf, allsstaðar!

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.