ÍBV og FH skildu jöfn á Hásteinsvelli
Úr leik ÍBV og Þróttar í Mjólkurbikarnum. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson

Karlalið ÍBV í fótbolta tók á móti FH á Hásteinsvelli í fyrstu umferð Bestu deildar karla í dag. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli og má segja að þetta hafi verið leikur tveggja hálfleika.

Eyjamenn byrjuðu leikinn betur og voru með yfirhöndina í fyrri hálfleik. Eftir um 30 mínútna leik hefði ÍBV átt að fá vítaspyrnu þegar Bjarki Björn Gunnarsson var tekinn niður inn í teig en dómarinn dæmdi ekkert. Á 35. mínútu leiksins dró hins vegar til tíðinda þegar Alex Freyr Hilmarsson kom boltanum fyrir markið og Viggó Valgeirsson þurfti ekki að gera annað en að stýra boltanum í netið. Viggó að skora sitt fyrsta mark í efstu deild. Eyjamenn leiddu 1-0 í hálfleik.

FHingar komu töluvert sterkari til leiks í síðari hálfleik. Á 73. mínútur leiksins fengu Eyjamenn dæmda á sig vítaspyrnu. Kjartan Kári Halldórsson steig á punktinn en Marcel Zapytowski markvörður ÍBV gerði vel og varði frá honum. Sjö mínútum síðar gerðist Milan Jezdemirovic sekur um slæm mistök þegar hann átti slaka sendingu til baka á Marcel. Boltinn endaði fyrir utan teiginn og Kári Kristjánsson setti boltann í autt markið og jafnaði í 1-1. Síðustu mínútur leiksins voru nokkuð líflegar en hvorugt liðið náði að knýja fram sigur.

Næsti leikur ÍBV er gegn Val á Hlíðarenda, föstudaginn 17. apríl kl. 18:00. 

Fyrsta umferð Bestu deildarinnar klárast í dag:

Föstudagur 10. apríl  Víkingur Reykjavík 1 – 1 Breiðablik

Sunnudagur kl. 13:00 ÍBV 1 – 1 FH

Sunnudagur kl. 17:00 KA – Stjarnan

Sunnudagur kl. 17:00 KR – Keflavík

Sunnudagur kl. 17:00 Valur – Þór Akureyri

Sunnudagur kl. 19:30 Fram – ÍA

Nýjustu fréttir

Lúkas Goði – Stefnan tekin á atvinnumennsku
Alexandra Ósk – Þetta líður miklu hraðar en þú heldur
Vilja að hafinn verði undirbúningur að smíði nýrrar ferju
ÍBV sækir Víking heim á morgun
Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun
Meistaramót GV hefst á morgun
Ölduhæð raskar samgöngum – aðeins ein ferð farin það sem af er deginum
Myndasyrpa frá göngumessu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.