Arnar kom íslenska landsliðinu á EM 2026

Eyjamaðurinn Arnar Pétursson stýrði íslenska kvennalandsliðinu í handbolta til sigurs gegn Portúgal í riðli fjögur í undankeppni EM 2026. Leiknum lauk með stórsigri Íslands og urðu lokatölur 32-24. Ísland tryggði sér með sigrinum sæti á Evrópumótinu sem fram í desember á þessu ári, en fyrir leikinn var vitað að þetta væri hreinn úrslitaleikur um sæti […]

ÍBV og FH skildu jöfn á Hásteinsvelli

Karlalið ÍBV í fótbolta tók á móti FH á Hásteinsvelli í fyrstu umferð Bestu deildar karla í dag. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli og má segja að þetta hafi verið leikur tveggja hálfleika. Eyjamenn byrjuðu leikinn betur og voru með yfirhöndina í fyrri hálfleik. Eftir um 30 mínútna leik hefði ÍBV átt að fá vítaspyrnu […]

Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári

Á aðalfundi Vinnslustöðvarinnar hf. þann 10. apríl kom fram að félagið hafi náð sterkum viðsnúningi í rekstri á árinu 2025 þrátt fyrir krefjandi rekstrarskilyrði, takmarkaðan loðnukvóta og aukið álag á íslenskan sjávarútveg. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá VSV sem birt er á heimasíðu fyrirtækisins. Þar segir jafnframt að heildartekjur hafi aukist um 4,8% og […]

Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma

Bilun hefur komið upp í vélbúnaði Herjólfs og siglir skipið því nú á takmörkuðu afli. Af þeim sökum hefur siglingatími til Þorlákshafnar lengst og er nú að minnsta kosti þrjár og hálf klukkustund. Unnið er að því að finna lausn á vandanum og verða frekari upplýsingar veittar þegar þær liggja fyrir. Tilkynning þessi kemur frá […]

Spurt og svarað: Guðni Hjöll frá Miðflokknum

Eyjafréttir kynna hér frambjóðendur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hvert framboð valdi fimm fulltrúa af sínum lista til að svara spurningum um bakgrunn, áherslur og sýn á framtíð samfélagsins. Nafn: Guðni Hjörleifsson  Aldur: 68 ára  Fjölskylda: Giftur Rósu Sveinsdóttir og saman eigum við þrjú börn, Ástu Björk, Hjörleif og Víði Þór og fimm barnabörn, Magnús, Kristófer Dag, Krumma, […]

ÍBV hefur leik í Bestu deildinni – tekur á móti FH á Hásteinsvelli

ÍBV hefur í dag keppni í Bestu deild karla þegar liðið tekur á móti FH á Hásteinsvelli. Leikurinn hefst klukkan 13:00. Upphitun hefst klukkan 12:00 þar sem stuðningsmenn geta komið sér í gírinn fyrir leikinn. Þá verða grillaðir borgarar til sölu á svæðinu og því tilvalið að mæta snemma, njóta stemningarinnar og styðja við bakið […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.