Arnar kom íslenska landsliðinu á EM 2026
Mynd/HSÍ

Eyjamaðurinn Arnar Pétursson stýrði íslenska kvennalandsliðinu í handbolta til sigurs gegn Portúgal í riðli fjögur í undankeppni EM 2026. Leiknum lauk með stórsigri Íslands og urðu lokatölur 32-24. Ísland tryggði sér með sigrinum sæti á Evrópumótinu sem fram í desember á þessu ári, en fyrir leikinn var vitað að þetta væri hreinn úrslitaleikur um sæti á mótinu. 

Portúgal var með yfirhöndina í fyrri hálfleik en íslenska liðið átti mjög góðan kafla undir lok hálfleiksins, þegar þær breyttu um vörn. Þær náðu þá þriggja marka forystu, 15-12, eftir að hafa verið tveimur mörkum undir. Ísland leiddi með þremur mörkum í hálfleik.  

Íslenska liðið hélt uppteknum hætti í síðari hálfleik og voru töluvert sterkari aðilinn. Þær unnu að lokum átta marka sigur, 32-24. 

Eyjastelpurnar létu til sín taka

Eyjakonurnar Díana Dögg Magnúsdóttir, Elísa Elíasdóttir, og Sandra Erlingsdóttir voru allar á sínum stað í liðinu, ásamt Andreu Jacobsen, tilvonandi leikmanni ÍBV. Sandra skoraði fjögur mörk, Elísa Elíasdóttir tvö, Díana Dögg eitt og Andrea Jacobsen eitt.

Ísland hafnaði í þriðja sæti riðilsins með fjögur stig og fer áfram sem eitt af fjórum liðum með besta árangur í þriðja sæti. Þetta er fjórða stórmótið í röð sem Ísland tekur þátt í. 

Nýjustu fréttir

Lúkas Goði – Stefnan tekin á atvinnumennsku
Alexandra Ósk – Þetta líður miklu hraðar en þú heldur
Vilja að hafinn verði undirbúningur að smíði nýrrar ferju
ÍBV sækir Víking heim á morgun
Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun
Meistaramót GV hefst á morgun
Ölduhæð raskar samgöngum – aðeins ein ferð farin það sem af er deginum
Myndasyrpa frá göngumessu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.