„Ert þú ekki þarna þessi tal-læknir?“ var ég einu sinni spurð af unglingi sem ég hitti á förnum vegi. Ég brosti og svaraði: „Jú, ég er talmeinafræðingur – og þú varst alltaf að koma til mín einu sinni.“ Hann hugsaði sig aðeins um og sagði svo: „Já… þú bjargaðir lífi mínu.“
Það er erfitt að lýsa því hversu dásamlegt er að heyra slíkt og hversu heitt það vermir hjartað. Augnablik eins og þetta minna mann á hvers vegna starfið okkar skiptir svona miklu máli.
Í dag, 6.mars, er Evrópudagur talþjálfunar, dagur sem ætlaður er til að vekja athygli á fjölbreyttu og mikilvægu starfi talmeinafræðinga. Margir gera sér kannski ekki grein fyrir því hversu víðtækt starfið er. Talmeinafræðingar vinna með fólki á öllum aldri – börnum, unglingum og fullorðnum – sem glíma við alls konar tal- og málmein. Það getur til dæmis verið barn sem á erfitt með ákveðin málhljóð eða er með slakan málþroska, unglingur sem hefur átt í erfiðleikum með félagsleg samskipti eða fullorðinn einstaklingur sem þarf að endurheimta röddina eða talmálið eftir veikindi eða áföll – ásamt svo mörgu öðru sem við sinnum.
Starfið er í senn bæði krefjandi og afar gefandi. Það krefst fagþekkingar, þolinmæði og mikillar samvinnu við foreldra, aðstandendur og aðra fagaðila, en á móti kemur sú gleði að fylgjast með framförum sem skipta raunverulegu máli í lífi einstaklinga. Lítil skref geta orðið að stórum sigrum – aukið sjálfstraust, betri samskipti og meiri þátttaka í daglegu lífi – það er það sem gerir starfið okkar svo sérstakt.
Kannski eru talmeinafræðingar ekki læknar í hefðbundnum skilningi. En við fáum að hjálpa fólki að finna röddina sína, tjá hugsanir sínar og taka virkan þátt í samfélaginu.
Og stundum, á óvæntum stað á förnum vegi, minnir einhver mann á það með einföldum orðum eins og: „Þú bjargaðir lífi mínu.“ Það er kannski besta lýsingin á því hvers vegna starf talmeinafræðinga skiptir svo miklu máli og hversu miklu máli það skiptir viðkomandi einstakling að njóta þjónustu okkar.
Til hamingju með daginn allir talmeinafræðingar og megi starf okkar vaxa og dafna samhliða því að skjólstæðingar okkar vaxa og dafna.