Eyjakonur í undanúrslit eftir frábæran sigur
Leikmenn ÍBV fagna. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV er komið í undanúrslit Mjólkurbikarsins eftir frábæran 1-3 sigur á Bestu deildar liði Tindastóls á Sauðárkróki fyrr í dag. Það var hin marksækna Olga Sevcova sem kom Eyjakonum yfir strax á 4. mínútu leiksins eftir að hún hafði sloppið í gegn og klárað fram hjá Genevieve Jae Crenshaw í marki Tindastóls. Lítið var um hættuleg færi fram að hálfleiknum að undanskildu einu dauðafæri Tindastóls.

Í upphafi seinni hálfleiks kom Olga Sevcova  boltanum öðru sinni í markið en hún var flögguð rangstæð. Eyjakonur voru með yfirhöndina allan leikinn en leikurinn frekar rólegur allt að 72. mínútu en þá átti Snæfríður Eva Eiríksdóttir góða sendingu inn fyrir á Birgittu Rún Finnbogadóttur sem náði að koma boltanum í netið af mikilli harðfylgni og þá allt orðið jafnt. Mínútu síðar fékk Birgitta svo annað dauðafæri en boltinn í stöngina. Eyjakonur áttu þá eftir að taka yfir leikinn aftur og uppskáru vítaspyrnu á 77. mínútu þegar boltinn fór í höndina á Nicola Hauk. Allison Grace Lowrey skoraði úr spyrnunni af miklu öryggi og kom Eyjakonum yfir á nýjan leik. Fimm  mínútum síðar var það svo Allison Patricia Clark sem gerði út um leikinn með þriðja marki ÍBV eftir frábæran undirbúning Olgu Sevcovu sem átti góða fyrirgjöf og Allison kláraði af miklu öryggi. 1-3 sigur ÍBV staðreynd og þær eru komnar í undanúrslit Mjólkurbikarsins. Það ber að hrósa öllu liðinu fyrir frábæran leik og Jón Ólafi Daníelssyni, þjálfara liðsins fyrir vel uppsettan leik. 

8-liða úrslitin klárast svo á miðvikudag og á fimmtudag. Þá mætast:

Valur – Þróttur

Breiðablik – HK

Þór/KA – FH

Undanúrslitin fara svo fram 30. og 31. júlí.

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.