„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
segir Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey
Sjomadur Bergey Opf 22
Trollið tekið inn. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Ísfisktogararnir í Síldarvinnslusamstæðunni hafa landað góðum afla síðustu dagana. Frá þessu er greint á fréttasíðu fyrirtækisins. Jóhanna Gísladóttir GK landaði í Grindavík á sunnudagsmorgun og þá lönduðu einnig Vestmannaey VE og Bergey VE í Vestmannaeyjum. Gullver landar síðan í Hafnarfirði í dag.

Einar Ólafur Ágústsson, skipstjóri á Jóhönnu Gísladóttur, sagði að landað hefði verið fullfermi og aflinn verið mest þorskur. „Við vorum að veiðum á Kópanesgrunni. Byrjað var á grunnslóðinni en þar fékkst heldur lítið. Þá færðum við okkur utar og þar var góður afli. Við vorum einungis tæpa tvo sólarhringa að veiðum þannig þetta gekk virkilega vel,” sagði Einar Ólafur.

Vestmannaey og Bergey lönduðu einnig fullfermi í Eyjum. Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergey,sagði að túrinn hefði gengið vel. „Við vorum að veiðum á Höfðanum, í Breiðamerkurdýpi og enduðum síðan á Pétursey. Aflinn var langmest ýsa. Veður var heldur slæmt til að byrja með en lagaðist síðan,” sagði Ragnar.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, var einnig ánægður með veiðiferðina. „Þetta var um tveir og hálfur sólarhringur þannig að það er ekki hægt að kvarta. Við byrjuðum á Ingólfshöfðanum og tókum síðan eitt hol á Víkinni. Aflinn var mest ýsa og það er búin að vera góð ýsuveiði í febrúarmánuði. Það er alltaf að koma loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala,” sagði Birgir Þór.

Þórhallur Jónsson, skipstjóri á Gullver, sagði að túrinn hefði byrjað fyrir austan. „Við byrjuðum á að fá ýsu og þorsk á Papagrunni en síðan var haldið vestureftir. Við vorum mest á Melsekk og þar var góð karfaveiði. Síðan var leitað að ufsa á Eldeyjarbanka og á Reykjanesgrunni með heldur litlum árangri. Aflinn í túrnum var 106 tonn, mest karfi en einnig töluvert af ýsu og þorski,” sagði Þórhallur.

Jóhanna Gísladóttir hélt til veiða á ný síðdegis á sunnudag og Vestmannaey og Bergey á miðnætti á sunnudaginn. Gullver mun halda til veiða síðdegis í dag.

Nýjustu fréttir

Ræsið lestrarvélarnar! Sumarlestur Bókasafnsins
Boða til opins fundar um stöðu og framtíð Landeyjahafnar
Mörkunum rigndi inn þegar ÍBV náði í sinn fyrsta sigur í sumar
Díana Dögg og Andrea þýskir meistarar
Gagnrýnir orðræðu stjórnmálamanna
„Nú þurfum við á ykkur að halda“
Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.