Karlalið ÍBV í handbolta virðist ekki ætla að komast í gang í vetur en liðið lék afar illa fyrir áramót og er aðeins með tvö stig á botni deildarinnar. Stuðningsmenn liðsins vonuðust eftir kraftaverki eftir pásuna sem gerð var á Íslandsmótinu vegna Evrópumóts landsliða en svo virðist sem liðið hjakki enn í sama farinu og standi öðrum liðum langt að baki. Í dag lék liðið gegn Fram sem átti ekki í miklum erfiðleikum með að tryggja sér níu marka sigur, 20:31.