ÍBV sækir Fram heim í Lambhagahöllina í kvöld í 21. umferð Olísdeildar karla í handbolta. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og má búast við hörkuleik þar sem bæði lið berjast um góðar stöður fyrir lokaumferð deildarinnar.
ÍBV situr sem stendur í fimmta sæti deildarinnar með 25 stig eftir 20 leiki, jafnt Aftureldingu að stigum. Fram er hins vegar sæti neðar með 24 stig og því aðeins stigi á eftir Eyjamönnum. Úrslit kvöldsins geta því haft töluverð áhrif á stöðuna í baráttunni um heimavallarrétt í úrslitakeppninni.
Eyjamenn hafa átt gott tímabil hingað til og unnið 12 af 20 leikjum sínum. Liðið hefur skorað 637 mörk en fengið á sig 617. Fram hefur einnig verið sterkt í vetur, með 12 sigra úr 20 leikjum, en hefur fengið færri mörk á sig en ÍBV og er með jákvæða markatölu upp á 36 mörk.
Þegar aðeins tvær umferðir eru eftir af deildarkeppninni skiptir hvert stig sífellt meira máli. Með sigri gæti ÍBV styrkt stöðu sína í efri hluta töflunnar og aukið forskotið á Fram, en heimamenn geta með sigri farið upp fyrir Eyjamenn. Öll umferðin í Olísdeildinni fer fram í kvöld og hefjast allir leikir klukkan 19:30.