Í kvöld, föstudag, tekur lið Vestmannaeyja þátt í Útsvarinu. Mótherjarnir að þessu sinni verður lið Skagfirðinga en lið Vestmannaeyja er skipuð sömu einstaklingum og kepptu í fyrra, þeim Gunnari Gunnarssyni, Ágústi Erni Gíslasyni og Sveini Waage. Þremenningarnir töpuðu reyndar viðureign sinni í fyrra en komust í 2. umferð sem eitt af stigahæstu tapliðunum.