Karlalið ÍBV leikur í dag afar mikilvægan leik gegn Grindvíkingum í Pepsídeild karla. Leikurinn fer fram á Hásteinsvelli og hefst klukkan 18:00 en búast má við erfiðum leik þótt staða liðanna í deildinni segi annað. Þannig hafa Grindvíkingar ekki tapað í síðustu sex leikjum sínum, hafa gert fjögur jafntefli og unnið tvo leiki, m.a. Íslandsmeistara FH í síðustu umferð.