Eyjan mín bjarta nú leik ég þér lag
Eftir helgi eru 45 ár frá því að gos hófst í Vestmannaeyjum aðfaranótt 23. janúar 1973. Allan þann tíma unnu Eyjamenn og vinir þeirra hörðum höndum að því að bjarga verðmætum og vernda mikilvæg mannvirki. Um leið og gosi var afýst hófst fólk handa við að skipuleggja heimferð fjölskyldu og vina, því Eyjan skyldi aftur fyllast af mannlí og verða græn.
Hvernig menn og konur höfðu orku og hugmynda ug til að grafa upp heila Eyju með takmörkuðum manna a og enn takmarkaðri tækjakosti er mörgum hulin ráðgáta. Og þó, ástin á þessari Eyju virðist takmarkalaus, um það vitna hundruðir ljóða og texta og við þau/ þá hafa menn samið lög. Sum þeirra verða flutt í Hörpu 20. janúar næstkomandi, ásamt ýmsu fleiru.
Eyjan mín bjarta í Eldborgarsal Hörpu
�?að verður sannkölluð Eyjastemn- ing í Eldborgarsal Hörpu á laugardaginn þegar stærsta árgangs- og ættarmót á Íslandi verður haldið og er þetta fyrir löngu orðinn fastur liður hjá mörgum. Flutt verða Eyjalög frá öllum tímum, en sérstaklega verða teknir fyrir bræðurnir Gyl og Lýður �?gissynir. �?eir eru Eyjapeyjar þótt fæddir séu á Siglu rði, það kemur glögglega fram í textum þeirra bræðra. Lögin hans Oddgeirs verða á sínum stað ásamt nýjum lögum og má þar nefna lag Guðrúnar Erlingsdóttur, Noregsfarar. Bjarni �?lafur Guðmundsson eða Daddi eins og við est þekkjum hann, skipuleggjandi sagði í samtali við Eyjafréttir að best væri af öllu að mæta og upplifa þetta. �??Stemningin í Hörpu á Eyjatónleikunum er löngu orðin vel þekkt og þú hreinlega mátt ekki missa af þessu kvöldi.�??
Bestu lög Eyjanna með úrvali listamanna.
�?órir �?lfarsson stýrir skútunni og spilar á hljómborð og með honum verða Birgir Nielsen �?órsson á trommur, Eiður Arnarsson á bassa, Jón Elfar Hafsteinsson á gítar, Kjartan Valdemarsson á hljómborð, Kjartan Hákonarson á trompet og Flugelhorn og Sigurður Flosason á saxafón, autu og slagverk. Söngvararnir sem koma fram í Eldborg þetta kvöld eru Jónsi, Jóhanna Guðrún, Stefán Hilmars- son, Eyjabræðurnir Helgi og Hermann Ingi Hermannssynir, Eyjakonan Guðlaug �?lafsdóttir, Eyjamaðurinn Kristján Gíslason, Alma Rut Kristjánsdóttir og Karlakór Vestmannaeyja. Sérstakir gestir verða svo Eyjapeyjarnir í Hröfnum. Hljómsveitina Hrafna skipa Hlöðver Guðnason, bræðurnir Georg og Vignir �?lafssynir og bræðurnir Helgi og Hermann Ingi Hermannssynir.
Fyrsta eftirpartýið í Hörpu
�?etta verður í fyrsta skipti sem tónleikagestum stendur til boða að doka við og spjalla eftir. Í þessu stærsta árgangs- og ættarmóti Íslands verður opinn bar eftir tónleika og bæði Hrafnar og Karlakór Vestmannaeyja ætla að troða upp. �??�?að verður því nægur tími til að hitta fólk og spjalla um gamla góða tíma, faðma, brosa, hlægja, syngja, segja sögur og hafa gaman, eiga dýrmætan tíma með fólki sem okkur þykir vænt um,�?? sagði Daddi. �?að er ekki annað að sjá en að á laugardaginn verði sannkölluð Eyjastemning í Hörpu sem vert er að upplifa. Hægt er að kaupa miða á, harpa.is og tix.is eða í miðasölu Hörpu í síma 528-5050.

Nýjustu fréttir

Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp
Sundlaugin opnar á ný
ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins samþykktur
Fyrirgefðu, móðgaði ég listaverkið þitt?
Aðalspaðarnir á tónleikum með Who, Four Seasons, Lulu og Animals
Sigurjón vann einvígið og tryggði sér titilinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.