Eftirfarandi frétt birtist á forsíðu Frétta 12. febrúar sl. þar sem sagt var frá opnum fundi Kristjáns L. Möller, þáverandi og núverandi samgönguráðherra í Vestmannaeyjum tveimur dögum fyrr. Þar segir m.a.: „Rekstur Herjólfs hefur verið þungur undanfarnar vikur og mánuði að því er kom fram á opnum borgarafundi með samgönguráðherra, Kristjáni L. Möller á þriðjudagskvöldið. Kom fram að Eimskip hefði ítrekað óskað eftir endurskoðun á samningi sínum um rekstur ferjunnar.