Fram tók á móti ÍBV í kvöld í Safamýrinni þar sem Framarar höfðu betur 26-21 en þetta var þriðji tapleikur ÍBV í röð.
Fyrri hálfleikur var jafn og spennandi en aðeins munaði einu til tveimur mörkum á liðunum þar sem Framarar höfðu frumkvæðið. Framarar náðu mest þriggja marka forskoti þegar skammt var eftir til hálfleiks en leikmenn ÍBV voru þá þrír inni á vellinum, strákarnir komu vel til baka og staðan í hálfleik var 14-13 fyrir heimamenn.
Í síðari hálfleik var það sama uppi á teningnum, jafnræði var með liðunum framan af en Framarar yfirleitt skrefinu á undan ÍBV sem jöfnuðu metin jafnhraðan. �?egar um tíu mínútur voru eftir af leiknum kom slæmur kafli hjá ÍBV en þeir skoruðu aðeins eitt mark á átta mínútna kafla og Framarar refsuðu fyrir það og unnu að lokum fimm marka sigur, 26-21.
Mörk ÍBV skoruðu þeir; Kári Kristján Kristjánsson 6, Andri Heimir Friðriksson 5, Grétar �?ór Eyþórsson 2, Hákon Daði Styrmisson 2, Dagur Arnarsson 2, Magnús Stefánsson 2 og Einar Sverrisson 2.
Kolbeinn Aron Arnarsson varði 16 skot í marki ÍBV og þar af tvö víti. Stephen Nielsen varði 1.