Fimm marka tap gegn Fram
Fram tók á móti ÍBV í kvöld í Safamýrinni þar sem Framarar höfðu betur 26-21 en þetta var þriðji tapleikur ÍBV í röð.
Fyrri hálfleik­ur var jafn og spennandi en aðeins munaði einu til tveimur mörkum á liðunum þar sem Framarar höfðu frumkvæðið. Framarar náðu mest þriggja marka forskoti þegar skammt var eftir til hálfleiks en leikmenn ÍBV voru þá þrír inni á vellinum, strákarnir komu vel til baka og staðan í hálfleik var 14-13 fyrir heimamenn.
Í síðari hálfleik var það sama uppi á teningnum, jafnræði var með liðunum framan af en Framarar yfirleitt skrefinu á undan ÍBV sem jöfnuðu metin jafnhraðan. �?egar um tíu mínútur voru eftir af leiknum kom slæmur kafli hjá ÍBV en þeir skoruðu aðeins eitt mark á átta mínútna kafla og Framarar refsuðu fyrir það og unnu að lokum fimm marka sigur, 26-21.
Mörk ÍBV skoruðu þeir; Kári Kristján Kristjáns­son 6, Andri Heimir Friðriksson 5, Grétar �?ór Eyþórsson 2, Hákon Daði Styrmisson 2, Dagur Arnarsson 2, Magnús Stefánsson 2 og Einar Sverrisson 2.
Kolbeinn Aron Arnarsson varði 16 skot í marki ÍBV og þar af tvö víti. Stephen Nielsen varði 1.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.