Fimmtán marka sig­ur kvennaliðs ÍBV
ÍBV sigraði Fylki í dag með fimmtán marka mun 33:18 í Vest­manna­eyj­um. Leik­ur­inn var í 3. um­ferð Olís-deild­ar kvenna en ÍBV er nú með fjög­ur stig við topp deild­ar­inn­ar. Mbl.is greinir frá.
Leik­ur­inn byrjaði vel fyr­ir bæði lið en síðan fór að halla und­an færi hjá Fylki. Eft­ir að staðan var 3:3 breytt­ist það í 16:6 en þannig var staðan í hálfleik.
Ekki veit ég hvað gerðist hjá Fylk­is­kon­um en allt gekk upp hjá ÍBV á meðan ekk­ert gekk upp hjá gest­un­um.
Í seinni hálfleik veittu gest­irn­ir ÍBV móts­spyrnu en það var ekki nóg þar sem gæðin voru meiri í ÍBV. Loka­töl­ur 33:18 og hefði sig­ur­inn al­veg getað verið stærri.
Karólína Láru­dótt­ir skoraði sjö mörk í liði ÍBV en Guðný Jenný Ásmunds­dótt­ir varði 15 skot í mark­inu. Mel­korka Mist Gunn­ars­dótt­ir varði 11 skot í marki Fylk­is.

Nýjustu fréttir

Eyjafiskur í mikilli sókn vestanhafs
Segja forsendur útboðs heilsuræktar hafa breyst verulega
ÍBV tekur á móti ÍR
Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Fermingar á næsta leyti
Bent kemur fram á Hljómey!
Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.